Bio – icelandic


Tatu Kantomaa

Tatu fæddist í Rovaniemi í norðurhluta Finnlands árið 1974 og hóf ungur nám í harmoníkuleik. Hann lék á fyrstu einleikstónleikum sínum ellefu ára gamall og fór ári síðar í langa tónleikaferð um Japan og Bandaríkin ásamt kennara sínum, Veikko Ahvenainen.

Til Íslands flutti Tatu árið 1996 og hefur átt stóran þátt í að efla harmoníkuna í tónlistarnámi hér á landi, en hann tók m.a. þátt í því að semja opinbera námskrá Menntamálaráðuneytisins fyrir harmoníku og annast kennslu í harmoníkuleik við Tónlistarskóla Kópavogs.

Tónlistarferill Tatu Kantomaa spannar nú yfir aldarfjórðung. Á síðustu árum hefur Tatu verið fastur meðlimur í hljómsveitinni Rússíbönum og flutt samtímatónlist með CAPUT hópnum, en með þeim fyrrnefndu hefur hann leikið inn á fimm plötur. Sjálfur hefur Tatu gefið út þrjár sólóplötur, leikið á tæplega þrjátíu upptökum með öðrum listamönnum og leikið tónlist í ýmsum uppfærslum Þjóðleikhússins, Íslenska dansflokksins og víðar. Upp á síðkastið hefur hann leikið töluvert af tangótónlist á bandóneon, en það hljóðfæri er náskylt harmoníkunni. Þessu til viðbótar hefur Tatu komið fram með fjölmörgum úrvals tónlistarmönnum, hvort heldur er á Íslandi eða erlendis, þeirra á meðal eru Egill Ólafsson, Björgvin Halldórsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kolbeinn Ketilsson og margir fleiri.