Bergþóra Árnadóttir – memorial concert

The Bergþóra Árnadóttir memorial concert will be repeated on saturday April 5th in Grafarvogskirkja at 20:30.

Bergþóra

Aukatónleikar til heiðurs Bergþóru Árnadóttur.

Tónleikarnir verða á laugardaginn kemur (5.4.) og verða þeir haldnir í Grafarvogskirkju klukkan 20:30. Tónleikarnir verða með sama sniði og síðast en státa tveimur auka söngvurum: Páli Óskari og Jóni Tryggva Unnarssyni. Markmið okkar sem stöndum fyrir tónleikunum er að gefa tónlistarfólki vettvang og tónlistarlega umgjörð með hinu frábæra bandi sem Hjörleifur Valsson valdi saman, en hljómsveitina skipa: Ástvaldur Traustason á píanó, Birgir Bragason á bassa og kontrabassa, Björgvin Gíslason á gítar og sítar, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Steingrímur Guðmundsson á slagverk og Tatu Kantomaa á harmoniku.

Söngvar sem voru með síðast og verða með aftur: Ragnheiður Gröndal, Hansa, Magga Stína, Jónas Sig og Svavar Knútur.

Blogg
Previous news