The music of Bergþóra Árnadóttir

A concert for the memory of a song writer Bergþóra Árnadóttir.

15th of February in Salurinn, Kópavogur at 20:30.

Þann 15. febrúar 2008 hefði Bergþóra Árnadóttir fagnað 60 ára afmæli sínu. Að því tilefni verða haldnir tónleikar til minningar um söngvaskáldið og baráttukonuna en hún lést langt fyrir aldur fram í mars 2007.

Margir af okkar frambærilegustu söngvurum og hljóðfæraleikurum munu klæða tímalaus lög Bergþóru í nýjan búning. Þeirra á meðal eru Ragnheiður Gröndal, Magga Stína, Lay Low, Hansa, Svavar Knútur, Jónas Sigurðsson, Hjörleifur Valsson, Tatu Kantomaa, Björgvin Gíslason, Birgir Bragason, Ástvaldur Traustason, Steingrímur Guðmundsson og fleiri. Það er Hjörleifur Valsson sem hefur veg og vanda að skipulagningu tónleikanna en hann var náinn vinur og samstarfsmaður Bergþóru.

Tónleikarnir verða í Salnum Kópavogi og hefjast klukkan 20:30. Miðaverð 2.700. Miðar fást á midi.is og hjá Salnum. Í aðdraganda tónleikanna mun Dimma gefa út 5 diska safn sem inniheldur allar hljómplötur Bergþóru auk fjölda annarra laga sem listakonan skilur eftir sig.

Salurinn
Blogg